Listahópurinn Maddý

  1. Search
  2. Subscribe
  3. Archive
  4. Random
Newer
Older
  • Gaypride ´09 / Art Fart ´09

    Í samvinnu við listahátíðina artFart efnir listahópurinn Maddý til sýningar á hátíð Hinsegin daga þar sem þau varpa sínu sérstaka ljósi á hinsegin veruleika líðandi stundar og spyrja ótal spurninga um eitt og annað sem leynist bak við glimmer og gleði. Hvernig trega lesbíur og hvernig gráta hommar? Hvað er að gerast í okkar gengisfellda veruleika og hvernig dafna ávaxtareikningarnir? Hefur þjóðin boðið samkynhneigða velkomna til þátttöku í samfélagið eða eru hommar og lesbíur ennþá freðin staðalímynd á jaðrinum sem engum ógnar með tilveru sinni, til þess eins að treysta hið
    gagnkynhneigða regluveldi í sessi?

    Hér er á ferð litrík fjöllistasýning í stóru rými þar sem innsetningu og gjörningum, myndlist og leiklist er splæst saman í bragðmikinn graut. Sýningarrýminu er skipt í margar vistarverur þar sem hver og ein stendur fyrir ákveðinn heim, hugsun eða fyrirbæri og margt er til umræðu – ást, ólifnaður, stolt, fegurð og trú, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er sýning áhorfandans, því sjálfur ræður hann hvernig hann rambar milli ólíkra heima. Það er hans að búa til sögurnar og sannleikann um heim
    hinsegin fólks á Íslandi árið 2009.

    Listahópurinn Maddý er hópur ungs fólks á aldrinum 18–23 ára sem vakið hefur mikla athygli. Skemmst er að minnast sýningarinnar Er’ ekki allir í sundi? í Sundhöll Reykjavíkur og eftirminnilegra innsetninga þeirra á Þvottalaugadeginum í vor. Stjórnandi hópsins er Tyrfingur Tyrfingsson. Sýningin fer fram föstudaginn 7. ágúst í Austurbæ við
    Snorrabraut, og hefst kl. 18, en áhorfendum er í sjálfsvald sett hve lengi þeir leita sannleikans með Maddý.

    IT’S ALL VERY QUEER, DEAR
    In collaboration with artFart, the performance art group Maddý invites you to a special exhibition in which modern day queer reality is addressed, and questions regarding what lies beneath the glitter and glamour are raised. How do lesbians mourn and how do gays cry? Have homosexuals really been accepted as a part of the norm, or are gays and lesbians still a harm- less, frozen stereotype, no more than an affir-
    mation of the reign of heterosexual patriarchy?

    The show makes use of a large space where performance art, visual art and theatrics
    are all spliced together into a tasty concoction. This is truly an audience-centered event,  as each participant controls his or her journey through the different areas of the exhibition, extracting the fact and the fiction of queer Iceland 2009. The show will take place on Friday, 7 August, in Austurbær Movie Theater, Snorrabraut 37, and starts at 6 p.m.

    Posted on July 10, 2009

  • oddfuture
  • frankocean
  • writersnoonereads
  • retrostefson
  • badlynamedband
  • tylerthecreator

Field Notes Theme. Designed by Manasto Jones. Powered by Tumblr.